INVENTORY
MýSilica is committed to providing a variety of quality merchandise for customers. By using the latest technologies and applying strict quality control procedures, we’ve become known for having the best products in the industry. Take a look at what we currently have in stock, and get in touch to order or learn more.
MOISTURIZING CREAM
This is your Product Description. Write a short overview of the product including important features, pricing and any other relevant information for a potential buyer. Make sure your text is clear and easy to read. Tip from the pros: add an image or video of the product to give your clients a way of visualizing what you are selling.
FACIAL CLEANSER

FLORAL LOTION

Það er hreinlega innbyggt í DNA MýSilica að huga að sjálfbærni og umhverfismálum, enda er grunnurinn að starfseminni nýting á hráefni sem hefur ekki verið nýtt hingað til og með því einu að nýta það verða til jákvæð áhrif á umhverfið. Starfsemi MýSilica styður við ýmis Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og horfir fyrirtækið einnig til þeirra þegar kemur að stefnumótun og ákvarðanatöku.
Heimsmarkmiðin eru 17, með 169 undirmarkmið. Það eru helst 4 markmið sem skarast við starfsemi MýSilica og hér verður það rakið stuttlega hvernig fyrirtækið leggur sitt af mörkum til að vinna að þeim.
5. JAFNRÉTTI KYNJANNA
Stofnandi MýSilica og framkvæmdastjóri er Fida Abu Libdeh, en hún hefur vakið athygli fyrir frumkvöðlastarf, fyrst með
GeoSilica og nú MýSilica. Hún hlaut FKA Hvatningarviðurkenninguna árið 2021, sem er veitt konu í atvinnulífinu fyrir athyglisvert frumkvæði eða nýjungar í atvinnurekstri. Með Fidu í forystu styður MýSilica við heimsmarkmið 5.5, sem kveður á um að tryggja virka þátttöku kvenna og jöfn tækifæri þeirra til að vera leiðandi við ákvarðanatöku á öllum sviðum stjórn- og efnahagsmála sem og á opinberum vettvangi.
8. GÓÐ ATVINNA OG HAGVÖXTUR
Starfsemi MýSilica byggir í grunninn á nýtingu á skiljuvatni frá Bjarnarflagsvirkjun sem hefur hingað til ekki verið nýtt, heldur dælt aftur út í náttúruna. Við það geta myndast kísil- og steinefnarík lón, sem geta haft slæm áhrif á jarðveginn til lengri tíma. Með því að nýta vatnið og vinna úr því kísil og steinefni er dregið úr líkum á lónmyndunum og dregið úr neikvæðum áhrifum sem lónin geta haft á jarðveginn. Með starfsemi MýSilica er því ekki aðeins forðast að ganga á náttúruna heldur einnig unnið gegn ágangi á hana. Er þetta í samræmi við heimsmarkmið 8.4 sem kveður á um að bæta nýtingu auðlinda og draga úr hagvexti sem gengur á náttúruna.
9. NÝSKÖPUN OG UPPBYGGING
Kísill og steinefni, sem MýSilica notar í MýMinerals vörurnar, eru unnin úr skiljuvatni, með aðferð sem hefur ekki verið áður notuð í þessum tilgangi og framleiðslubúnaði sem er þróaður af MýSilica. Þannig er framleiðsluferlið drifið áfram af nýsköpun, sem talar við heimsmarkmið 9.
12. ÁBYRG NEYSLA OG FRAMLEIÐSLA
Í öllu framleiðsluferlinu horfir MýSilica til heimsmarkmiðs 12 um ábyrga neyslu og framleiðslu. Þannig leitast fyrirtækið alltaf við að nota eins sjálfbærar aðferðir og hægt er á hverju stigi og í hverjum þætti starfseminnar. Eins og áður hefur verið komið inn á er tilurð fyrirtækisins og starfsemi þess í grunninn til góðs fyrir umhverfið, þar sem vinnsla á kísil og steinefnum úr skiljuvatni dregur úr líkum á slæmum áhrifum á jarðveg.